Ófrjósemisaðgerð karla
Sáðrásunum er lokað og því komast sáðfrumur ekki í sæðisvökvan og eru ekki til staðar við sáðlát.
Sáðrásirnar frá eystunum eru teknar í sundur með lítilli skurðaðgerð og lokað fyrir endana.
Kostir
- Mjög örugg getnaðarvörn
- Auðveld aðgerð sem má gera í staðdeyfingu án innlagnar á sjúkrahús
- Aðgerðin hefur engin áhrif á sáðlát eða kyngetu karlmannsins
- Varanleg getnaðarvörn
Ókostir
- Smámar og þroti getur komið á aðgerðarsvæðið sem lagast fljótt
- Nokkrir mánuðir geta liðið þar til allar sáðfrumur eru horfnar úr sæðisvökvanum. Nota þarf öruggar getnaðarvarnir þennan tíma eða þar til tvö sæðissýni hafa sýnt að sáðfrumurnar eru horfnar
- Einstaka sinnum geta sáðrásirnar opnast aftur og þá er karlinn frjór á ný
- Erfitt er að tengja sáðrásirnar saman aftur
Nánari upplýsingar
Umsókn um ófrjósemisaðgerð þarf að vera skrifleg því aðgerðin er varanleg.
Mikilvægt er að hafa hugleitt þessa ákvörðun vel og vera fullviss um að vilja ekki eignast fleiri börn. Pör/hjón þurfa að ræða saman, eða fara í ráðgjöf, um þessa ákvörðun áður en til aðgerðarinnar kemur.
