04 apríl 2006

Blöðruhálskirtillinn

Blöðruhálskirtillinn er staðsettur í um það bil 4 cm fjarlægð frá endaþarmsopinu fyrir framan endaþarmsvegginn og rétt fyrir neðan þvagblöðruna. Þessi kirtill er á stærð við valhnetu og hann myndar blöðruhálsvökvann sem verður hluti af sæðinu. Blöðruhálsvökvinn inniheldur svipuð efni og vökvinn sem kemur úr sáðpípunum. Hann veitir smurningu, kemur í veg fyrir sýkingu í þvagrásinni, verndar sáðfrumur, gefur þeim orku og minnkar sýrumagnið í farvegi legganganna.
Framleiðsla blöðruhálsvökva eykst umtalsvert við kynferðilega örvun. Fyrir fullnægingu flæðir sáðvökvi inn í blöðruhálsinn og við fullnægingu herpist blöðruhálsinn saman og tæmist við sáðlát.
Sumir menn eru haldnir þeirri firru að erting blöðruhálsins geti aukið líkur á bólgu eða karbbabeini í blöðruhálskirtlinum. Þetta er alls ekki rétt þó að læknar rannsaki blöðruhálsinn þegar þeir leita að bakteríum eða krabbameini. Í ferli sem gengur undir heitinu "blöðruhálsinn mjólkaður", má pumpa kirtilinn þangað til vökvinn streymir úr honum en þó án fullnægingar.
Það þykir víst rosalega gott að nudda blöðruhálskirtilinn í gegnum endaþarminn og margir karlmenn geta fengið fullnægingu þannig.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home