28 febrúar 2006

Potturinn

Bíllinn rann hratt eftir veginum í myrkrinu.
Innanborðs voru tvær manneskjur. Karlmaður og kvenmaður, maður og kona, strákur og stelpa.
Þau spjölluðu saman um daginn og veginn. Bíllinn hægði á sér og beygði útaf veginum yfir á malarveg. Eftir smá spotta eftir malarveginum beygði hann inn á vegaslóða og keyrði hann þar til komið var að litlu hrörlegu húsi.
Þau stíga út úr bílnum og feta sig inn í húsið.

Feimin klæða þau sig úr og stíga út í lítinn pott sem er við húsið.
Stjörnubjartur himininn kastar daufri birtu á umhverfið og þau sjálf. Aðeins er hægt að greina útlínur og grófa andlitsdrætti. Þau stara saman út í himingeiminn og dást að stjörnunum. Vatnið umlykur þau og í þögninni heyrist ekkert nema rennandi lækur skammt frá.
Þau njóta þess að finna vatnið leika við nakið hörund sitt í návist hvors annars.
Fótur snertir fót óvart og hönd rekst við læri. Röð tilviljanakenndra atvika veldur því að brátt sitja þau í örmum hvors annars.
Þau sitja þétt saman og hundsa þá augljósu staðreynd að bæði þrá hvort annað. Líkamar þeirra öskra af þrá svo hver snerting verður jafnt fróun og ákall á meira.

Hann tekur loks af skarið og stríkur höndinni upp með hálsi hennar og kyssir hana blíðlega. Hún svarar kossi hans mjúklega en full af þrá. Hann þrýstir henni upp að veggnum svo hún finnur harðan manndóm hans við sköp sín.
Hann heldur honum þar þangað til að hún iðar af löngun við að fá hann inn í sig, þá rennir hann sér inn í hana, hægt en ákveðið og fyllir hana alveg. Hún tekur andköf við að finna hann svona djúpt inni í sér.
Hann stoppar inni í henni og horfir á hana. Losti og þrá skín í andlitsdráttum hennar. Hann lítur fram og kyssir hana undurblítt og skakar sér til og frá. Hún stynur, andar ótt og títt og dregur hann til sín í ástríðufullum kossi.
Þau finna bæði hvernig lostinn tekur völdin úr höndum þeirra og losar um allar hömlur. Hann ræður ekki við sig og hamast á henni. Stunurnar og vatnsbuslið rjúfa friðsæla þögnina.

Stjörnurnar horfa þöglar á leik elskendanna.

Hann hættir að hamast á henni og dregur sig út úr henni. Hún gefur frá sér óánægjuhljóð en hann sest upp á bakkann. Þar sér hún sér leik á borði og fer að gæða sér á hörðum limnum hans. Hann stynur lágt og stríkur yfir hárið á henni.
Hún sleikir liminn græðgislega og tekur hann allan upp í sig. Hann þrýstir henni enn neðar og hún nýtur þess að finna hann alla leið niður í kok. Hann losar takið og gefur henni frjálsar hendur. Hún stríkur og sleikir liminn og hann finnur að hann á ekki langt eftir.
Hann nýtur þess að finna handbragð hennar á sér og varar hana við rétt áður en bunan spítist út úr honum. Hún drekkur hann í sig og sleikir hann hreinann.

Hann rennir sér kaldur ofaní pottinn aftur og hún vefur hann örmum og gefur honum hlýju af sínum líkama. Hann tekur utanum hana og þau kyssast.
Hann strýkur yfir brjóstin á henni og fingur hans leita milli læra hennar. Hann leitar uppi snípinn og nuddar hann rólega.
Æsingurinn í henni er mikill en hann heldur rólega taktinum. Þau spjalla saman á meðan hann nuddar hana og hún á erfitt um mál sökum stuna.
Í miðri setningu kyssir hann hana djúpt og þrýstir sér að henni. Hún finnur fyrir hörðum limnum upp við líkama sinn.
Hann snýr henni við og tekur hana aftan frá. Brjóst hennar nuddast upp við bakkann og háar stunurnar óma í loftinu.
Hann nýtur þess að ríða þessari æstu stelpu og horfir á hana engjast um undir sér. Hann stríkur yfir rassinn á henni og gælir aðeins við rassopið. Við það æsist hún mun meira svo hann stingur einum fingri varlega í þröngt gatið.
Hún ræður ekki við sig og fer hamförum undir honum, stynur og öskrar af unaði og skekur sér til og frá.
Þessi atlot hennar æsa hann mikið. Hann stingur öðrum fingri inn í hana og finnur að hún ræður vel við liminn.
Hann tekur liminn út úr píkunni og ber hann við rassinn á henni. Hún er alveg kyrr og bíður þess að hann þrýstir sér inn í þröngann rassinn. Hann þrýstir sér inn í hana og finnur hana opnast, varlega ýtir hann sér inn fyrir og fer að ríða henni hægt. Lágar stunur berast frá munni hennar.
Hann eykur hraðann og nýtur þess að finna þröngan rassinn herpast utanum liminn. Hann finnur að hann eigi eftir að fá það fljótt og brátt ræður hann ekki við sig og fer að hamast fast á þrönga rassinum hennar. Hún öskrar, unaðsblandið sársaukavein sker loftið. Hann sprautar rassinn á henni fullan. Dregur sig út úr henni og tekur hana í fangið.
Hann kyssir andlit hennar og hvíslar að henni ástarorðum. Hún hjúfrar sig að honum og nýtur þess að vera í fangi hans.

Saman lyggja þau í pottinum og horfa á stjörnurnar sem að urðu vitni að þessum ástarfundi þeirra.

20 febrúar 2006

Drauma Herra

Var að lesa inni á collarme.com áðan og fann þessa hrikalegu löngun í minn eigin Herra, sem væri mér allt og að ég væri honum allt.
Hann myndi vera mér góður, ræða við mig, strjúka mér og leika.

En það eru engar smá kröfur sem ég myndi setja á viðkomandi og hann yrði að standa undir þeim. Á þann hátt er ég mjög ósanngjörn.
Þetta eftirfarandi er það sem að drauma Herrann minn myndi hafa að bera.

Fyrst og fremst vinur og vinur í raun
Vel að sér
Vel menntaður
Karlmaður
Líkamlega sterkur
Andlega sterkur
Ákveðinn en samt ekki frekur.
Blíður
Mjúkur
Ekki hræddur við að taka á mér.
Hlustar
Talar
Lærir á mig
Kemur fram við mig eins og dýrmæta eign sína.
Verndar mig
Veitir mér skjól
Sýnir mér að hann vilji mig
Baðar mig í athygli.
Stjórnar mér
Lætur mig finna að valdið sé hjá honum.
Leikur sér að mér
Lætur mig uppfylla fantasíur sínar
Uppfyllir fantasíur mínar.
Heilla mig
Vekur upp þá löngun að ég geri allt fyrir hann
Hávaxinn
Svolítið þéttvaxinn
Axlabreiður
Hrifinn af leðri og leikföngum.
Vel efnaður
Traustur
Á aldrinum 24 – 37 ára
Einhleypur
Á eigin íbúð eða hús
Býr einn
Lætur mig sig varða
Kynferðislega virkur
Tilbúinn að prófa sig áfram

Ef ég finn svona mann myndi ég vilja gera hvað sem er fyrir hann. En hinsvegar eru margar þessar kröfur mjög óraunhæfar og alls ekki allt nauðsynlegar.

12 febrúar 2006

Rólan

Að koma til þín er eins og að fara inn í svarthol.

Ég opna hurðina og veit ekkert hvað bíður mín. Geng ákveðin inn og kem að þér í óða önn að undirbúa.

"Klæddu þig úr" segiru þegar þú verður var við mig án þess að líta við. Þegjandi geri ég eins og þú segir. Þegar ég er orðin nakin segiru skipandi "settu ólarnar á þig". Þegar ólarnar eru komnar á sinn stað ertu búinn að undirbúa það sem þú þarft og snýrð þér að mér. Þú tekur utan um axlirnar á mér og stillir mér upp.

Síðan hefstu handa við að binda mig. Fyrst seturu band undir brjótin á mér og fyrir ofan þau líka. Það fer utanyfir hendurnar á mér og heldur þeim þétt að líkamanum, takmarkar hreyfigetu mína til muna. Síðan ferðu að binda utan um sitthvort lærið á mér við nárann, böndin skerast inn í holdið og ég finn vel fyrir þeim.
Þú rótar eitthvað í töskunni og kemur til baka með augnleppa sem þú setur á mig. Ég er gjörsamlega blind.
Ég finn að þú átt eitthvað við böndin og bætir fleirum við, eitt fer utanum mjaðmirnar á mér og annað utan um magann. Bæði eru vel hert svo ég finn þau grafast inn í líkamann minn.

Allt í einu segiru skipandi "hallaðu þér aftur". Hikandi halla ég mér afturábak og bíð þess að böndinn taki við þunganum af líkamanum mínum en ekkert gerist. Ég rýs upp aftur svo ég detti ekki aftur fyrir mig. Þú sussar á mig og segir mér að reyna aftur. Í þetta skiptið styðuru við mig og brátt finn ég böndin taka við mér. Fyrst við axlirnar, síðan bakið, mjaðmirnar og loks við nárann.
Böndinn taka allann þungann minn og ég ligg í einskonar rólu.

Þú tekur annan fótinn á mér og bindur um hnéið og festir það upp í loft. Strax í kjölfarið binduru hitt í sömu stellingu. Ég finn að þú ferð að bisa við öklaólarnar á mér og fljótlega eru þær líka festar upp í loft.
Síðan koma bönd til að halda hnjánum á mér í sundur svo ég ligg í rólunni opin hverjum sem vildi fá aðgang að mínum nánustu stöðum.
Ég heyri þig róta í dótinu og það læðist að mér illur grunur.
Þú kemur til baka og stríkur yfir renn blauta píkuna mína. Ég hafði búist við þessu en mér bregður engu að síður við snertinguna. Ég finn þá að ég er mun æstari en ég hélt. Þú stingur einhverju, sem ég held að sé höndin þín, inn í mig ýtir mér svo ég sveiflast til í rólunni. Svona sveiflaru mér til og frá og það er ekkert sem ég get að gert. Allt í einu kippiru hendinni út og ég heyri þig ganga í burtu.

Ég róla hægt til og frá eftir að þú ýttir mér og hlusta. Ég heyri hljóð sem ég kem ekki fyrir mig.
Ég hlusta á þig koma aftur og þú leggur eitthvað ofaná magann á mér. Þú lagar það til og ég finn allt í einu titring við snípinn á mér. Þetta hlýtur að vera risastór titrari sem þú ert að koma fyrir þarna.
Þú stingur fingrunum aftur inn í mig og nuddar mig að innan. Ég engist um af unaði og á erfitt með að halda aftur af stununum sem vilja brjóstast fram.
Þú tekur fingurna aftur út úr mér og setur titrara inn í staðinn. Unaðurinn fyllir mig alla og alltof fljótt ertu kominn aftur og tekur titrarann út úr mér.
Ég finn kaldann þykkan vökva renna um heita píkuna á mér og þú smyrð mig alla, rennir hendinni niður eftir rassinum á mér og gælir aðeins við rassopið. Ég finn einn fingur renna auðveldlega inn í mig og út aftur. Síðan kemut eitthvað mun stærra.
Sársaukinn heltekur mig alla þegar þú ýtir þessu inn, ég finn hvernig teyjist á hringvöðvanum og sársaukastuna brýst fram á vörum mér. En allt í einu er titrarinn kominn aftur á bólakaf í pikuna á mér og unaðurinn verður yfirgnæfandi. Þú hreyfir hann til og frá, inn og út og ég finn hvernig ég er uppfull af leikföngum.
Það sem fyllir rassinn á mér eykur aðeins unaðinn af titrurum tveimur á snípnum og í píkunni. Þú hamast með titraranum á mér og ég nýt þess í botn.
Ég finn að bráðlega muni ég fá yfirgengislega fullnægjingu af þessu og ekki líður á löngu þar til líkaminn slappast alveg í algleymingi unaðarins. Fullnægin læðist inn en brýst út með látum og ég hreinlega öskra þegar hún hríslar sig um líkamann minn. Í kjölfarið fæ ég krampa og hendist til í böndunum.
Ég bið þig að hætta og þú tekur titrarann út úr mér og tekur líka dótið úr rassinum á mér. Síðan finn ég að þú stríkur blíðlega yfir næma píkuna á mér.
Ég nýt þess að finna snertinguna og mótmæli ekki þegar þú laumar einum putta inn í mig.
Ég kreysti mig saman og finn enn betur fyrir þér inni í mér. Þú nuddar mig blíðlega að innan og ég styn lágt. Síðan kemur annar putti inn og þú eykur hraðann.
Áhrifin standa ekki á sér og ég finn að ef þú heldur þessu áfram muni ég fá aðra fullnægingu fljótlega. Þú virðist skynja þetta líka og hættir ekki.

Eftir ótrúlega stuttan tíma finn ég aðra fullnægingu læðast inn. Hún er ekki eins kröfug og sú fyrri en það breytir því ekki að ég skelf og kippist til í böndunum.
Ég finn vel fyrir þeim skerast inn í holdið og þegar skjálftinn er liðinn hjá grátbið ég þig að hætta.
"Finnst þér þetta ekki gott?" spyrð þú kíminn og heldur áfram að gæla við píkuna á mér. Unaðurinn er mikill en ég er aum og böndin eru farin að meiða mig. Helst vildi ég vera lengur en ég get það ekki.
"Jú" segi eins og satt er.
"Afhverju á ég þá að hætta?" spyrð þú og leikur þér að viðbrögðum líkamans og stríkur yfir píkuna sem kemur af stað krampa út um allan líkamann.
"Ég er orðin svo aum" styn ég upp eftir að krampinn er liðinn hjá.
"Allt í lagi" segir þú og ferð tekur titrarann af snípnum og gengur frá honum.

Þá finn ég hvað mér er orðið kalt og hvernig böndin skera sig inn í líkamann minn. Ég bíð róleg þangað til þú kemur aftur.
Þú losar niður fæturna og ég legg þá á gólfið. Blóðið streymir í þá og ég fæ heiftarlegan náladoða. Síðan togaru mig á fætur og ég finn að ég get varla staðið.
Þú losar augnbindið af mér og ég sé ógrinnin öll af böndum sem hafa verið notuð til að halda mér uppi. Þú dundar þér við að losa mig á meðan ég skelf af kulda. Þegar ég er loksins laus skríð ég í fangið á þér og næli mér í hlýju frá líkama þínum.
Þú heldur utan um mig í smá stund og segir mér síðan að fara að klæða mig. Ég geri eins og þú segir og finn brátt að mér hitnar þegar ég er komin í fötin. Á meðan ég klæði mig genguru frá því sem þú notaðir á mig ofan í tösku. Þegar ég er tilbúinn göngum við út saman og höldum síðan í sitthvora áttina.

"Þangað til næst" segiru að kveðjuskyni.
Loforðið sem þessi orð bera í sér kitla mig. Hvað verður næst?

10 febrúar 2006

BDSM

Bondage and Discipline, Dominance and Submission, Sadism and Masochism.
Bindingar og agi, drottnun og undirgefni, sadismi og masókismi.


Fólk skilgreinir BDSM á mjög mismunandi hátt.

Fyrir mér er þetta allt spurning um traust. Það verður að vera algjört traust til staðar áður en það er hægt að fara að leika af einhverju viti. Og það tekur tíma að
byggja upp traust! Það kemur ekki á einni nóttu.
Fyrir mér er BDSM ekki eitthvað sem á heima í flokki skyndikynna.

Virðing og vinátta verður að vera til staðar á báða/alla bóga til að þetta gangi upp.
Þá verður hinn drottnandi að bera jafn mikla virðingu fyrir þeim undirgefna og hann ætlar sér að fá frá honum. Eins finnst mér það mjög mikilvægt að geta talað við hinn aðilann um hvað sem er utan senunnar.

Samskiptin eru síðan lykillinn að þessu öllu.
Mikil samskipti gera góðann leik. Þú getur ekki ætlast til þess að hinn aðilinn viti allar þínar þrár og fantasíur án þess að segja honum það. Eins er mikilvægt að tala saman um leikinn eftir á: Hvað gekk vel og hvað gekk illa o.s.fr.
Mennirnir eru jú misjafnir eins og þeir eru margir.

---

Það sem heillar mig við BDSM er frelsið. Það má allt!! Allir þínir hugarórar eru til þess að framkvæma þá.

Hingað til hef ég líka ekki tekið eftir öðru en að öllum sé tekið með opnum örmum í BDSM samfélaginu hérna á Íslandi. Þér er tekið eins og þú ert og ert ekki dæmd/ur fyrir hegðun eða óra sem annarsstaðar eru illa liðnir.

Það er líka svo gaman. Frelsið í að vera undirgefin öðrum, fullkomið frelsi í fjötrunum þar sem þú berð ekki einusinni ábyrgð á sjálfum þér. Það er æðislegt.
Eins að skemmta sér með öðrum og finna að þú hefur valdið til að gera hvað sem er.... Möguleikarnir verða endalausir.

08 febrúar 2006

Story from a friend

Ég var búinn að koma mér fyrir á staðnum þar sem við ætluðum að hittast. Ég var með stóra buttplugginn í rassinum og typpið og punginn í gaddahólkum. Um hálsinn var þykka ólin og undir leðurhettunni og gasgrímunni var munnkeflið og eyrnatappar.
Cloverklemmurnar voru á geirvörtunum og hendurnar hlekkjaðar fyrir aftan bak með leðurólum og hengilás.
Þú tókst í tauminn á ólinni og leiddir mig inn í bíl.

Ég sá ekkert hvert við vorum að fara.

Keyrðir í dágóða stund og strýddir mér. Settir clover klemmurnar á geirvörturnar. Lítið sem ekkert heyrðist á bakvið keflið og grímurnar.

Ég hafði ekki hugmynd hvert við vorum komin. Þú leiddir mig út og togaðir í tauminn. Ég elti tauminn blindur.

Skyndilega stoppaðir þú og byrjaðir að klæða mig úr fötunum,öllu nema skónum.

Ég þóttist heyra mannamál eins og það væru fleiri... en var samt ekki viss... jú... kannski

Þú hengdir lóð neðan í punginn og settir taum í typpahólkinn og byrjaðir að toga mig áfram.

Allt í einu var togað í hálsólina á hlið.... það var eins og sá taumur væri bundinn í eitthvað fast. Þú togaðir mig aðeins áfram og skyndilega fann ég fyrir svipuhöggum og kipptist við. Ég var rekinn áfram af langri svipu ásamt því að togað var í typpahólkinn. Það voru semsagt fleiri.

Það var erfitt að klöngrast þarna með lóðið á milli fótanna en nú var það bara svipan sem rak mig áfram. Ég veit ekki hversu lengi þetta gekk svona en einhversstaðar í millitíðinni voru klemmurnar teknar af geirvörtunum. Ái.

Ég var dauðuppgefinn, enda ekki auðvelt að anda í gegnum tvö lítil göt sem síðan þarf að fara í gegnum fílter gasgrímunnar.

Þið bunduð mig fastann við eitthvað húsgagn. Klemmur á geirvörtunum voru festar beint fram og aftur í leðurhettuna. Pungurinn togaður niður, typpið upp og lykkja um hálsinn tryggðu að ég gat mig ekkert hreyft án þess að valda sársauka eða óþægindum.

Það kostaði talsverð átök að ná stóra buttplugginum út en úffff... hvað það var gott að losna við hann. Adam var ekki lengi einn í paradís því stuttu eftir að hann var farinn út var engilferrót stungið í rassinn...aaaaaargh það byrjaði ekkert illa en bruninn kom skömmu seinna og hélt áfram eftir að hún var tekin. Uppblásanlegi buttplugginn var næstur og var hann pumpaður upp þangað til ég hætti að anda.

Þá tóku við gælur. Ég var allur strokinn mjúklega, faðmaður og knúsaður. Sérstök áhersla var lögð á typpið... svona til að tryggja að hann færi nú í réttstöðu inní gaddahólknum.

En áður en gælurnar hurfu allveg, tók áslátturinn við... svipur, ólar,pískar og guðmávitahvað var látið vaða á bak, læri og rass. Stutt hlé voru gerð inn á milli en þetta hélt engu að síður alltaf áfram og áfram og áfram. Helvítis stóra svipan sem ég var viss um að væri búin að hakka mig niður... tilbúinn í niðursuðudósirnar. Ég var farinn að halda að ég gæti ekki meira þegar barsmíðarnar hættu skyndilega. KLAKINN! vá hvílík sæla. Ég var viss um það heyrðist hviss snark og læti og að ég hyrfi í hvítum gufumekki þega klakinn bráðnaði á rassinum og lærunum.

Skammgóður vermir.

Það hélt síðan allt áfram eftir að hafa leikið við Mr.sprella og blásið herra buttplug nokrum sinnum upp og niður.

Loksins hætti það og ég var tekinn niður. Ég gat varla staðið og enganveginn séð neitt þegar hettan var tekin af hausnum... munnkeflið var togað út með fyrirhöfn. Langþráð næring. En þetta var ekki búið, nei nú var farið að skipta út fjötrunum fyrir plastfilmu. Plaströr í nefið og uppblásanlegt kefli í munninn. Tapparnir í eyrunum voru látnir vera. Það var mikið nákvæmisverk að pakka í plastfilmuna þar sem hver einasti líkamspartur fékk sér vafning. Hver putti hver tá. Allt nema pungurinn og typpið. Bómullarhnoðri var skilinn eftir við geirvörturnar annars var ég allur vafinn inn í plast. Hausinn var einnig pakkaður inn í ducktap ofan á plastið sem og nokkrar styrktarlínur úr ducktape voru lagðar á mikilvægum stöðum. Það sem kom út úr stórum pakkanum var slangan með pumpubelgnum í buttpluggið, typpið og pungurinn og tvær plastslöngur úr nefinu. Það leið langur tími þangað til ég var losaður og hann var vel notaður í rannsóknir og notkun gaddaólarinnar sem búin hafði verið til í fjarskanistan

07 febrúar 2006

Eftirmiðdagur

Við hittumst á opinberum stað, kaffihúsi á Laugarveginum. Ég er þegar komin og er að lesa blað. Ég er klædd í gráa kápu með hvítan trefil um hálsinn. Eins og oft gerist gleymum við okkur í spjallinu og sitjum inni á kaffihúsinu í þónokkurn tíma. Þú veitir því kannski ekki neina sérstaka athygli en ég tek ekki af mér trefilinn eða renni kápunni frá mér, enda er frekar kalt í veðri. Þegar við stöndum upp tekuru eftir berum fótleggjum mínum undan kápunni.

Við göngum út á Laugarveginn sem er krökkur af fólki. Stikum okkur leið upp á Lokastíg þar sem ég er með íbúð í láni.
Við komum inn í hlýja íbúðina og ég tek jakkan af þér. Beygi mig niður og klæði þig úr skónum. Þú gengur inn og skoðar þig um. Íbúðin er vel inrétt með alskyns dóti tengdu BDSM. Leðurklæddu stóru X-i, rimlarúmi, stórt baðherbergi með niðurfall á gólfinu, svipum og cropum upp á veggjum, ólar og annað nothæft príðir augað.

Þú snýrð þér við og sérð að ég er enn alklædd. Þegar ég sé að ég hef fengið athygli þína aftur tek ég af mér trefilinn og undir honum sérðu að ég er með frekar háa hálsól úr leðri, í ólina er festur grannur taumur. Ég renni kápunni hægt niður og þú sérð aðeins bert hold og granna leðurreim sem rennilásinn opnast. Ég fer úr kápunni og stend nakin fyrir framan þig, aðeins íklædd hálsól með taumi.
Þú brosir og ég brosi líka rjóð í vöngum og feimin fyrir framan þig. Ég fer niður á hnéin fyrir framan þig og lyfti taumnum og býð þér að taka hann, held báðum höndum í átt til þín með tauminn á milli þeirra, horfi niður á gólfið fyrir framan mig og bíð.

Eftir nokkur andartök finn ég að þú tekur tauminn af höndunum mínum. Finn að þú togar aðeins í hann og ég stend upp. Enn feimin og þori ekki að horfa á þig. Þú tekur undir hökuna mína og lítur í augun á mér. Ég sé strax að þú ert ánægður og ég brosi lítillega.
“Elsku litla prinsessan mín” segiru og kyssir mig á ennið. Síðan teymiru mig inn í stofu. Þegar þangað er komið segiru mér að hátta þig.
Ég byrja að hneppa frá skyrtunni, tölu fyrir tölu. Horfi hugfangin á bera bringuna og stelst til þess að kyssa brjóstkassann blíðlega. Tek skyrtuna af öxlunum á þér og legg hana á stól. Síðan fer ég niður á hnéin fyrir framan þig og losa beltið, töluna og renni buxnaklaufinni niður. Toga buxurnar niður um þig og kemst að því að þú ert nakinn innanundir.

Harður limurinn heilsar mér og ég brosi lítillega með sjálfri mér og horfi hugfanginn á hann. Ég lít biðjandi upp til þín og þú kinkar kolli.
Ég kyssi þá létt á kónginn og sleiki hann allan. Ég sleiki liminn frá rót fram á kóng þangað til hann glansar af munnvatni. Síðan tek ég hann allan upp í mig eins djúpt og hann kemst. Ég bora nefinu á mér í skapahárin og nýt þess að finna lyktina af þér, sérstök og æsandi. Ég tek liminn aftur út úr mér og sleiki kónginn. Tek kónginn rétt upp í mig, vef hann vörum mínum og læt tunguna leika við hann. Þú tekur um höfuðið á mér og lætur mig horfa í augun á þér á meðan ég sekk limnum í heitann munn minn. Þú stynur lágt og biður mig síðan að klára að klæða þig úr.
Ég fjarlægi buxurnar og þú færð þér sæti í sófanum. Ég sest við fætur þér og klæði þig úr sokkunum. Þegar þeir eru farnir tek ég fæturnar á þér og legg upp við brjóst mín og kyssi létt hverja tá fyrir sig og upp á ristina.
“Þú ert búin að vera mjög góð stúlka” segiru og ég brosi til þín ánægð með frammistöðuna.

Þú segir mér að setjast í sófann við hlið þér og faðmar mig að þér. “Snúðu þér við” segiru og orðalaust geri ég eins og þú segir. Þú stendur upp en ég sé ekki hvað þú gerir. Allt í einu tekuru aðra höndina mín og setur á hana ól. Síðan seturu ól á hina höndina og læsir höndunum á mér saman fyrir aftan bak.
Ég finn heitan koss aftan á bakinu á mér og finn hann berast um allan líkamann. Þú tekur um axlirnar á mér og dregur mig að þér. Ég finn fyrir mjúkum líkama þínum á bakinu á mér og ég velti því fyrir mér hvað þú ætlir eiginlega að gera við mig. Ég nýt þess að finna snertingu þína og finnst sá tími sem ég fékk að liggja í örmum þér alltof stuttur.

Allt í einu stendur þú upp og skipar mér á gólfið. Þú skipar mér að vera á hnjánum og beygja mig upp á sófann. Ég gegni þessu og allt í einu fæ ég högg á rassinn. Ég tek andköf því ég bjóst ekki við þessu. Þú sussar hastalega á mig og strýkur yfir rassinn á mér. Þú rennir fingrunum niður boruna þangað til þú kemur að polli. Allt í einu stinguru einum putta inn í mig og ég styn lágt. Þú sussar aftur á mig og segir að ég það heyrist múkk frá mér aftur munir þú kefla mig. Ég bít í vörina á mér og þegi.

Allt í einu finn ég kaldan vökva á rassinum á mér. Hann lekur þykkur niður boruna og yfir gatið. Strax í kjölfarið finn ég fingur þrýsta sér inn í rassinn á mér og fljótlegar er annar kominn. Ég finn að þú setur titrara inn í renn blauta píkuna á mér og tekur síðan fingurna út úr rassinum á mér. En fljótlega finn ég þig þrýsta limnum inn í mig. Ég slaka á og finn hann renna auðveldlega inn og fylla mig.
Þú ferð að ríða mér hægt og ég á erfitt með að vera þögul vegna þess hve ótrúlega gott þetta er. Ég gef frá mér lága stunu og þú rassskellir mig fyrir það. Við skellinn kippist ég til og tek styn aftur. Annar skellur og ég finn hann um allan líkamann. Vöðvarnir kippast til og þú finnur mig herpast utan um liminn. Þú rassskellir mig aftur og aftur og í hvert skipti fyllist ég unaðslegum sársauka.
Ég finn betur fyrir þér inn í rassinum á mér og titraranum í píkunni. Allt í einu finn ég að ég á ekki langt eftir í að fá það. Skellirnir dynja á rassinum á mér og ég kippist til af unaði og sársauka.
Þú finnur að ég er að fá það og herðir róðurinn á rassinum á mér. Allt í einu finnuru taktfasta krampa í rassinum.. Titrarinn rennur út úr píkunni á mér og ég limpast niður undir þér. Þú dregur liminn út úr rassinum á mér og strýkur yfir bakið á mér.

Þú stendur upp og teymir mig inn í rúm. Þar notaru ólarnar til að binda mig við rúmið en sjálfur ferðu fram. Fljótlega kemuru aftur inn og setur bindi fyrir augun á mér og ferð fram aftur. Ég ligg alein eftir í myrkrinu og hlusta á þig.

Ég veit að það er ekki langt þangað til þú kemur aftur.

Eftirminnileg nótt

Ég var að vinna úti á landi, það var ca 2 klst keyrsla heim. Þetta kvöld var ég að vinna frameftir og losnaði ekki fyrr en kl. 22:30. Ég sest upp í bílinn minn og bruna af stað í bæinn. Á leiðinni tala ég við vin minn og finn að það hríslast um mig kunnuleg tilfinning.

2 tímum seinna renn ég í hlaðið hjá honum. Öll ljósin í húsinu eru slökkt og ég finn spennuhnút í maganum á mér. Ég læðist upp tröppurnar og tek í húninn, það er ólæst eins og ég bjóst við. Hann hefur samt ekki hugmynd um að ég sé að koma og það æsir mig upp.

Ég reyni að fara hljóðlega og klæði mig úr frammi á gangi í myrkrinu og læðistn nakin inn í herbergið. Hann verður var við mig og sest forviða upp... "Hæ" hvísla ég í stríðnistón "Hæ" segir hann hissa. Ég stend fyrir framan hann og horfi djúpt í augun á honum. Hann horfir á mig til baka, rennir augunum yfir nakinn líkamann minn og veit tilhvers ég er komin. Hann stríkur yfir mjaðmirnar, upp magann og grípur um brjóstin á mér. Hann nuddar þau smá og fylgist með hvernig ég æsist upp. Hann gæðir sér á öðru brjóstinu og ég styn þegar ég finn hvernig hann bítur laust í geirvörtuna.

Allt í einu hendir hann mér í rúmið og fer ofaná mig, kyssir mig djúpum kossi. Hann kyssir sér leið niður eftir líkamanum mínum og endar á því að sleikja allt í kringum rennblauta píkuna. Hann sleikir laust yfir rifuna og ég þrýsti mér á móti tungunni hans til að fá hana dýpra en hann leyfir það ekki.

Svona pínir hann mig þangað til ég get ekki meira og bið hann að sleikja mig almennilega. Hann hlær og allt í einu er tungan hans komin djúpt á milli þrútinna barmanna. Ég tek andköf og styn hátt. Hann hamast á blautri píkunni og allt í einu finn ég hann renna einum putta inn í píkuna á mér. Ég lyfti mjöðmunum á móti honum og hann nýtir sér tækifærið og fer að gæla við rassinn líka. Hann rennir einum fingri rétt inn í gatið. Við það ærist ég og nánast öskra af unaði. Ég finn fullnæginguna byggjast upp inni í mér og bíð eftir að hún brjóstist út. Hann hamast með tungunni á snípnum, tvo fingur í píkunni og einn í rassgatinu. Ég ræð ekki við mig lengur og fullnægingin skekur mig alla.

Hann rís upp og rennir limnum inn í heita og fullnægða píkuna á mér. Ég elska þegar það er gert við mig og nýt þess alveg í botn, píkan er svo næm að ég finn enn betur fyrir þrútnum limnum sem gengur inn og út úr mér. Eftir smá tíma snýr hann mér við og rennir sér inn í mig að aftan... Á meðan hann ríður mér með löngum hægum hreyfingum stríkur hann á mér bakið, rassskellir mig létt og fer aftur að gæla við rassgatið. Smátt og smátt eykur hann hraðann og ríður mér fastar og dýpra með hverri hreyfingu. Ég finn að hann fer að fá það og herpi saman grindarbotnsvöðvanna utanum liminn. Hann stynur hátt og hamast á mér með öllum kröftum. Allt í einu fær hann það og sprautar píkuna á mér fulla af brundi. Hann dregur slappann liminn út og smyr brundinu yfir píkuna. Ég styn þegar fingur hans koma snípinn og hann umlar eitthvað um hvað þetta hafi nú verið gott.

Ég leggst niður á magann og hann leggst við hliðina á mér. Við sofnum þannig í fanginu hvort á öðru.

Morguninn eftir endurtökum við leikinn.

Dráttur af netinu.

Þegar ég legg í stæðið fyrir utan hjá honum opnast útidyrnar og þarna stendur hann myndarlegur á nærfötunum. Ég geng frá bílnum og fer inn. Svolítið feimin, enda að sjá hann í fyrsta skiptið. Þegar ég er komin inn lokar hann dyrunum á eftir mér, ég fer úr skónum og við skiptumst á örfáum orðum.

Allt í einu tekur hann utan um mig og kyssir mig djúpum tungukossi, ég svara eftir bestu getu en það er erfitt að halda í við gráðuga tungu hans.
Við kyssumst stutta stund og hann fer að káfa á mér. Fer upp undir pilsið og dregur sokkabuxurnar niður á læri. Rennir fingrunum inn á milli blautra barmanna og inn í rennandi píkuna. Ég styn hátt við þetta og missi máttin í löppunum. Ef hann hefði ekki haldið mér uppi hefði ég dottið. Ég leita stóran liminn hans uppi og rúnka honum smá.

Snögglega ýtir hann mér niður og biður mig um að totta sig. Ég fer græðgislega að sjúga hann og sleikja og tek hann djúpt upp í mig. Stunur hans enduróma um íbúðina. Hann grípur um hausinn á mér og stjórnar því hvernig ég totta hann um stund.
Síðan reisir hann mig við og fer með mig inn í herbergi. Hann segir mér að klæða mig úr og fylgist með á meðan. Síðan segir hann mér að leggjast í rúmið því hann ætli að sleikja mig. Ég geri það og hann tekur olíu og ber á mig síðan finn ég hann troða einum fingri inn í rassinn á mér, á sama tíma fer einn í píkuna og hann byrjar að sleikja mig á fullu. Ég emja og styn af unaði og það rymur í honum á milli læra minna. Hann sleikir mig kröftuglega dágóða stund og ég nýt þess alveg í botn. Skyndilega rís hann upp og stingur hörðum limnum á kaf í mig...

Hann ríður mér fast og hratt í smá stund og ég ræð varla við mig af greddu. Hann fer að tala til mín, hversu gott það sé að ríða mér, hversu yndislega blaut pussan mín sé, hversu æðilegt það væri ef fleiri væru með okkur; einn í rassi, einn í píku og einn í munni... Hann skipar mér að þegja á meðan hann ríður mér, en horfir allan tíman í augun á mér og sér vel hversu gott mér finnst þetta.

Hann hættir allt í einu og fer aftur niður á mig og sleikir mig.. og segir mér að fróa mér í leiðinni. Hann setur putta inn í rassinn á mér og hamast þar á meðan ég hamast í píkunni og á snípnum. Hann stingur einum putta inn í píkuna mína og saman erum við á fullu í píkunni á mér.

Allt í einu skelf ég og fullnægingin fer um mig alla. Ég ýti honum úr klofinu á mér og hann sest á rúmið og segir mér að totta sig. Ég fer strax á fjórar og fer að totta hann og leika við mig í leiðinni. Ég tek liminn allann upp í mig og sleiki niður á punginn. Þar fer ég að gæla við punginn og tek eistum varlega upp í mig og sýg þau. Hann stynur og biður mig að sleikja undir punginn. Ég sleiki gráðug það svæði og hann byrjar að fróa sér í leiðinni, stunurnar hans æsa mig enn meira svo ég fer aðeins að gæla við píkuna. Hann biður mig þá að putta sig í rassinn, varlega ýti ég einum putta inn í þröngt rassgatið og finn það herpast utan um fingurinn. Ég þrýsti fingrinum lengra inn í hann og hann stynur hátt af unaði.. Ég finn hlýjuna unlykja fingurinn inni í honum og fæ kjark til að hreyfa hann til og þrýsta á þau svæði sem eiga að veita mestan unað. Á meðan sleiki ég punginn og spöngina á fullu og hann fróar sér í leiðinni.

Allt í einu stynur hann því upp að hann sé að fá það... Ég sé hvíta bununa spítast út úr limnum og áður en sú næsta kemur tek ég kónginn í munninn til að taka á móti henni. Ég sleiki hann ákaft og fróa honum áfram í rassinn. Hann stynur og nýtur þess í botn. Þegar fullnægingin var yfirstaðin dreg tek ég liminn út úr mér og dreg fingurinn út úr honum aftur. Hann brosir við mér... og segist hafa notið þessa í botn. Við spjöllum smá og síðan klæði ég mig til að fara. Hann fylgir mér út að dyrum og segist endilega vilja gera þetta aftur við tækifæri... Og þá segist hann pottþétt ætla að vera með vin eða vini sína með sér.

Ég geng brosandi og ánægð út í nóttina.
"Góður dráttur"

Fantasía come true

Við ákváðum stað til að hittast á og þegar ég sá bílinn hans renna upp að mínum steig ég út og settist upp í bílinn hans. Hann horfði á mig, brosti og spurði hvort ég vildi láta verða af þessu. Þarna gaf hann mér leið til að hætta við, en ég vildi gera þetta.

Hann náði þá í bindi og batt fyrir augun á mér. Ég var blind á hans valdi.
Hann keyrði af stað út úr bænum og í sumarbústað sem hann átti. Ég hafði ekki hugmynd um hvert hann var að fara með mig og sat róleg, en samt ótrúlega æst, á leiðinni. Þegar um 30 mínútur voru liðnar taldi ég í mig kjark og leitaði uppi höndina hans, hann tók í mína og ég fann að hann var ótrúlega stór. Það veitti mér öryggi að finna snertingu hans og ég fann að ég þráði þennan mann. Eftir smá tíma hvíldi hann höndina á lærinu á mér. Hún bara lá þarna, án þess að gera neitt og það eitt æsti mig rosalega mikið. Ég vildi að hann stryki mér, færi jafnvel inn á mig, en hann kom mjög herramanslega fram og gerði ekkert.

Eftir um klukkutíma bíltúr komum við að bústaðnum. Hann leiddi mig út úr bílnum og inn og ég fann hvað ég var hjálparlaus svona blind.

Hann leiddi mig inn í herbergi og klæddi mig úr fötunum, lagði mig niður á rúm og fór að gæla við mig. Hann strauk mig alla. Frá stórutá upp að litlafingri. Mér leið eins og ég væri dýrgripur sem þurfti að meðhöndla sérstaklega varlega. Stórar hlýjar hendur hans léku um líkama minn á blíðlegan hátt, traustvekjandi en jafnframt æsandi. Hann sneiddi hjá brjóstunum og klofinu, þangað til ég var var að springa að hann lét einn fingur strjúkast yfir píkuna. Á þessu augnarbliki var ég orðin óendanlega æst og rennandi blaut. Ég þráði meira og ég fékk það.

Hann tók um brjóstin mín og kyssti þau. Lét tunguna leika um geirvörturnar og tók þær upp í sig. Síðan snéri hann mér á magann og strauk yfir bakið á mér og niður á rass. Ég aðskildi lærin svo hann hefði fullan aðgang að píkunni. Og fljótlega fóru strokur hans að miðast niður á við, að rassinum og að klofinu. Hann strauk yfir rassinn og renndi hendinni niður eftir píkunni minni. Nuddaði snípinn smá og strauk upp með börmunum og yfir rassinn aftur. Og þá allt í einu kom skellur, þungt höggið hitti hægri rasskinn og í kjölfarið var fingur kominn á kaf í píkuna á mér.

Ég vissi ekki að hann ætti þetta til og stundi af unaði. Hann sussaði á mig og ég þorði ekki öðru en að hlýða því. Hann puttaði mig lengi vel og stoppaði alltaf þegar hann fann að ég var orðin mjög æst. Mér fannst hann vera að ganga frá mér, í hvert sinn sem hann stoppaði og dró fingurinn út úr píkunni á mér þráði ég hann meira.
Síðan reisti hann mig upp á hnéin og þá vissi ég að hann ætlaði að ríða mér. Ég beið í ofvæni eftir að finna liminn hans fylla mig, en mátti bíða lengi. Hann lét hann strjúkast yfir rassinn og píkuna og nuddaði honum við snípinn. Ég var að ærast og reyndi að veiða hann inn í mig í hvert skipti sem hann fór framhjá blautu gatinu. Að lokum þrýsti hann limnum ákveðið inn í mig og reið mér af öllum mætti.

En jafn skjótt var hann búinn að draga hann út aftur og rassskellti mig laust og sussaði á mig. Ég vildi meira svo ég var þögul sem gröfin. Og ég fékk meira. Hann setti liminn djúpt inn í mig og hélt honum þar kyrrum. Ég vildi meira svo ég fór að skaka rassinum við liminn og reið honum þannig. Hann stundi og ég fann að honum líkaði þetta. Hann dró sig hægt út úr mér og ég fann hann leggjast við hliðina á mér.

Ég greip tækifærið og leitaði uppi harðann liminn og fór að sleikja hann. Ég skoðaði hann með tungunni og munninum og fann að hann var frekar þykkur og mikill um sig. Ég tók hann varlega upp í mig og mér til mikillar ánægju tókst mér að taka hann allan upp í mig.

Hann stundi og dró mig að sér, kyssti mig djúpt og bað mig að setjast ofaná liminn. Það var smá brölt og vesen þar sem ég sá ekki neitt, en unaðurinn þegar ég fann hann renna inn í mig var ólýsanlegur. Ég fór að ríða honum eins og knapi ríður hesti á stökki og fann hann fylla mig vel.

Hann dró mig síðan niður til sín og tók bindið af mér. Tilfinningin að sjá loksins framan í mannin sem maður er að ríða er ólýsanleg. Greddan skein framan úr andlitinu á honum og hann horfði á mig eins og hann hefði aldrei séð annað eins. Þetta augnarblik æsti mig mjög mikið.

Hann ýtti mér af sér og tók þétt utan um mig, lagði mig á bakið og fór að kyssa mig alla. Hann kyssti sér leið niður að píkunni minni og fór að sleikja mig. Ég fann að það liði ekki á löngu áður en ég fengi það. Hann lék sér að viðbrögðum mínum og stríddi mér og dró fullnæginguna á langinn. Loksins þegar ég fékk það var það svo æðislegt að orð fá því ekki lýst.

Aðeins örfáum sekúndum eftir að fullnægingin var gengin yfir var hann kominn upp á mig og reið mér ákveðið. Ég elska það þegar mér er riðið eftir að ég hef fengið það og ég herpti píkuna utan um liminn til að finna sem best fyrir honum. Hann fór hamförum á mér og ég sá að hann var að fá það. Ég þrýsti mér á móti honum til að unaðurinn yrði enn betri og með hárri stunu fann ég hann sprauta mig fulla af brundi. Hann lagðist hjá mér og kyssti mig alla í framan.

Við kúrðum og spjölluðum lengi vel áður en við fórum saman í sturtu og hann keyrði mig aftur í bæinn.

Hann þakkaði kærlega fyrir sig og sagði að þetta hefði verið æðislegt.

Síðan fórum við hvort sína leið.
Hver veit nema við eigum eftir að rekast hvort á annað í framtíðinni