Leggöng
Leggöngin eru ekki opið rými eins og margir virðast halda heldur frekar "mögulegt rými". Í hvíldarstöðu líkjast þau göngum sem hafa lagst saman.
Vöðvavefurinn í leggöngunum gerir þeim kleift að víkka út og leggjast saman og þau laga sig að fingri jafnt sem getnaðarlimi og barni við fæðingu.
Meðallengd legganga er aðeins um 7.5 cm eða í masta lagi 9 cm. Þau víkka samt og stækka við kynferðislega örvun svo að getnaðarlimur eða gervilimur passar inn í píkuna.
Fyrsti þriðjungur legganganna inniheldur um 90% af taugaendunum í leggöngunum, og mest af þeim er í kringum opið. Innri hlutinn er ekki eins næmur og bregst við stífari örvun s.s. þrýstingi sem verður við samfarir.
Leggöngin eru þakin slímhúð. Oestrogen heldur veggjum legganganna sterkum, heilbrigðum og rökum. Þegar minna er af oestrogeni, eins og fyrir kynþroska og eftir breytingaskeið, eru veggirnir þynnri og ekki eins rakir.
Í fullorðnum konum er er vökvinn í leggöngunum súr en í unglingum er hann meira basískur. Og þar sem sáðfrumurnar eru sprækari í basísku umhverfi eiga unglingsstúlkur það meira á hættu að verða ófrískar en fullorðnar konur.
Vefurinn í leggöngunum er sjálfhreinsandi og mjög viðkvæmur. Þvottur með sápu getur ert klæðninguna og gert hana rauða, þess vegna er mikilvægt að þvo þetta svæði einungis með vatni.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home