10 febrúar 2006

BDSM

Bondage and Discipline, Dominance and Submission, Sadism and Masochism.
Bindingar og agi, drottnun og undirgefni, sadismi og masókismi.


Fólk skilgreinir BDSM á mjög mismunandi hátt.

Fyrir mér er þetta allt spurning um traust. Það verður að vera algjört traust til staðar áður en það er hægt að fara að leika af einhverju viti. Og það tekur tíma að
byggja upp traust! Það kemur ekki á einni nóttu.
Fyrir mér er BDSM ekki eitthvað sem á heima í flokki skyndikynna.

Virðing og vinátta verður að vera til staðar á báða/alla bóga til að þetta gangi upp.
Þá verður hinn drottnandi að bera jafn mikla virðingu fyrir þeim undirgefna og hann ætlar sér að fá frá honum. Eins finnst mér það mjög mikilvægt að geta talað við hinn aðilann um hvað sem er utan senunnar.

Samskiptin eru síðan lykillinn að þessu öllu.
Mikil samskipti gera góðann leik. Þú getur ekki ætlast til þess að hinn aðilinn viti allar þínar þrár og fantasíur án þess að segja honum það. Eins er mikilvægt að tala saman um leikinn eftir á: Hvað gekk vel og hvað gekk illa o.s.fr.
Mennirnir eru jú misjafnir eins og þeir eru margir.

---

Það sem heillar mig við BDSM er frelsið. Það má allt!! Allir þínir hugarórar eru til þess að framkvæma þá.

Hingað til hef ég líka ekki tekið eftir öðru en að öllum sé tekið með opnum örmum í BDSM samfélaginu hérna á Íslandi. Þér er tekið eins og þú ert og ert ekki dæmd/ur fyrir hegðun eða óra sem annarsstaðar eru illa liðnir.

Það er líka svo gaman. Frelsið í að vera undirgefin öðrum, fullkomið frelsi í fjötrunum þar sem þú berð ekki einusinni ábyrgð á sjálfum þér. Það er æðislegt.
Eins að skemmta sér með öðrum og finna að þú hefur valdið til að gera hvað sem er.... Möguleikarnir verða endalausir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home