11 apríl 2006

Dótakassinn

Fyrsta dótið mitt: Meðalstór, grænn dildó.
Ég fékk hann frá fyrsta kærastanum mínum árið 2001. Vá, hann er 5 ára. Hann virkaði vel og lengi, en titringurinn hefur gefið upp öndina. Á hann ennþá, því hann virkar alveg án titringsins.

Hvítur titrari úr hörðu plasti. Hann keypti ég í setti úti á Spáni fyrir margt löngu síðan. Honum fylgja fjórar hulsur sem eru mismunandi í laginu. Ein er eins og venjulegt tippi, annað ýkt útgáfa af tippi, röndótt og doppótt.

Fjólublár g-bletta titrari úr hörðu plasti. Elska núna g-blettatitrara en titringurinn í þessum gaf sig upp úr þurru um daginn.

Blár frekar stór titrari úr hörðu plasti. Hann er ekkert smá öflugur og ekkert smá hávær. Hefur fengið viðurnefnið Höggborinn.
Ekki fyrir byrjendur.

Lítill grænn titrari úr hörðu plasti.
Lítill og mjór og hentar vel í rassinn.

Styttri grænn titrari úr hörðu plasti.
Mjór og hentar ágætlega í rassinn, en helst til stuttur, hef lítið sem ekkert notað þennan.

Höfrungur. G-bletta titrari með höfrungahöfuð úr mjúku sílíkoni.
Vatnsheldur. Passlega krafmikill og góður viðkomu. Algjört æði!!
Hef ekki farið með hann í bað.

Ofurtitrarinn minn. Bleikur kaníkutitrari.
Hann er með perlum inni í sér sem snúast þegar hann er í gangi. Höfuðið snýst í hringi svo það nuddar leggöngin. Við hann er fest egg með kitlu á.
Bestur en batteríshákur.

Cyberegg. Hávært og eyðir batteríum mjög hratt. Er ekki mikið betra en venjulegt egg heldur bara öðruvísi.

Gullegg. Gyllt egg sem gerir enn sitt gagn. Allar stúkur ættu að eiga eitt svona egg.

Silfuregg. Ílangt silfuregg. Kraftmikið og batteríin endast endalaust. Það er í uppáhaldi.

Blátt gegnsætt egg úr plasti.
Það er hætt að framleiða svona gull og silfur egg og þetta drasl komið í staðinn. Ekki jafn kraftmikið og batteríin endast illa. Fjarstýringin er líka þannig að það kveiknar á því af minnsta tilefni.

Fjólublár lyklakipputitrari. Pínulítill, kraftmikill en eyðir batteríunum hratt.

Handatitrari. Þetta stykki seturu um úlnliðinn og setur síðan litla fingurtitrara á puttann á þér sem þú stingur í samband við stykkið.
Þetta er svosem allt í lagi. En er fyrirferðamikið og lítið notað.

Lítill “nudd” titrari sem ég keypti á tvær evrur í Frankfurt.
Ekkert sérlega kraftmikill en gerir sitt.

Butplug. Man ekki hvað ég er búin að eiga hann lengi, en hann hefur gert sitt gagn.
Hann er meðalstór og mjög góður.
Hef mikið notað hann.

Lítill appelsínugulur gegnsær butplug. Ég hélt að hann titraði þegar ég keytpi hann.
Hann er samt allt í lagi. Það er fínt að sitja t.d. með hann í sér þegar maður er í tölvunni.

Bleikar analkúlur. Ég hef ekki notað þær á sjálfa mig. En aðrir hafa fengið að prófa.
Þær eru mjög stífar svo ég gæti trúað því að það sé vont að fá þær inn í sig.

Síðan á ég spólur, teninga, spil, bækur, blöð, DVD, ólar, klemmur, keðjur, písk, bönd, ballgag, olíur og sleipiefni...

Segi nánar frá því seinna.

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

væri gaman að komast í leik með dótakassanum þínum ;)

þri. maí 09, 11:31:00 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

gæti hugsað mér leik með þér

mán. jún. 26, 11:09:00 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Þetta er bara hinn glæsilegasti dótakassi hjá þér. Frábært að eiga svona kassa. Dót er til skemmtunar og það er eitthvað sem þú kannt greinilega. Keep Up The Good Work.

fim. okt. 19, 07:11:00 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Dótakassi hljómar betur sem gámur.

mið. sep. 19, 09:55:00 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home