11 mars 2006

Drottnandi

Eins og sést er ég skiptir og þá 23% drottnandi.
Þessari tölu sletti ég fram þar sem ég finn að ég er mun meira undirgefin en drottnandi.

Ég er mjög stjórnandi í samskiptum við vini mína og bara almennt dags daglega. Ég vil að hlutir séu gerðir eftir mínu höfði.
Þess vegna er mér mjög eðlislægt að drottna og nýt þess að drottna yfir öðrum.

Það er gaman að drottna. Að leika sér að annarri manneskju sér til ánægju. En það er mikil ábyrgð og það verður að vera mjög meðvitað. Þannig huxa ég þetta amk.

Drottnun er skemmtileg! Ég æsist ekkert sérstaklega upp kynferðislega við að leika mér að öðrum einstaklingi. En ég skemmti mér alveg konunglega. Svo maður tali nú ekki um þegar viðkomandi fílar þetta í botn. Og allt er þetta gert með hinn undirgefna í huga.

Ég hef samt þá reglu að ég geri aldrei neitt við undirgefin nema hafa prófað það sjálf sem undirgefin. Mér finnst annað bara ósanngjarnt því annars getur maður ekki vitað alveg hvað hinn undirgefni er að ganga í gegnum.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home