Blöðrubólga
Blöðrubólga er mjög óþæginleg. Hún kemur til vegna ójafnvægis í sýrustigi í blöðrunni og þá myndast sýking og bólga á þessu svæði. Tilfinningin er eins og maður þurfi alltaf að pissa, en það er jafnframt mjög óþæginlegt.
Þvagláti fylgir sviði og óþægindi sem oft tekur langan tíma að jafna sig aftur. Það sem veldur blöðrubólgu er kuldi, áreiti á þessu svæði og eins hefur hreinlæti mikið að segja.
Í mjög alvarlegum tilfellum getur sýkingin borist upp í nýru.
Hér eru líka nokkur ráð við þessu vandamáli
1. Drekka mikið vatn, það hreinsar út sýkla og annað.
2. Pissa ALLTAF eftir kynmök. (Hefur oft bjargað mér.)
3. Trönuberjasafi er bestur við blöðrubólgu. Drekktu hann reglulega og þá á maður að losna að mestu við blöðrubólgu. Hann er líka fyrirbyggjandi. Eitt glas á dag kemur blöðrunni í lag.
4. Sítrónusafi er líka góður við blöðrubólgu.

1 Comments:
Það er líka sniðugt að kaupa hreinan trönuberjasafa (óblandaðan, fæst í apótekum) Þá þarf ekki nema eina matskeið á dag sem fyrirbyggjandi... Svo mætti kannski bæta við á þennan lista að ef ekkert af þessu virkar þarf að sjálfsögðu að leita til læknis og fá sýklalyf. Þegar svona sýking er ekki meðhöndluð getur hún gengið upp í nýru. Örugglega ekki gaman að liggja uppi á spítala með þvaglegg og sýkingu í nýrum!
Skrifa ummæli
<< Home