Hettan
Mesta öryggi er 94%. Ef hún er rétt notuð. Ef ekki er fylgt leiðbeiningum geta líkur á þungun aukist.
Mjúk gúmmíhetta með sæðisdrepandi efni sem er sett upp í leggöngin fyrir samfarir.
Hettan þekur leghálsinn og hluta legganga og hindrar að sáðfrumur berist upp í legið.
Kostir
- Nokkuð örugg getnaðarvörn
- Hettuna og sæðisdrepandi krem/hlaup má segja inn við hentugt tækifæri nokkru fyrir samfarir
- Staðbundin verkun efst í leggöngunum
- Auðvelt er að setja upp, fjarlægja og finna hvort hettan sé rétt staðsett
- Hægt að nota sömu hettuna í mörg ár
- Veitir einhverja vörn gegn kynsjúkdómum og krabbameini í leghálsi
Ókostir
- Gúmmíið í hettunni getur valdið ertingu í leggöngum
- Meiri möguleiki er á þvagfærasýkingu, ef að konan er næm fyrir slíku
- Ef stærð hettunnar er ekki rétt getur hún valdið óþægindum í leggöngum
- Bæta þarf við sæðisdrepandi efni ef að samfarir eru endurteknar (sprautað inn í leggöngin)
- Getur færst úr stað
Nánari upplýsingar
Mæla þarf stærð hettu sem hentar líkama hverrar konu. Nota þarf sæðisdrepandi efni í formi krems eða hlaups með hettunni og bera það á báðar hliðar hennar áður en hún er sett upp.
Hettuna á ekki að fjarlægja fyrr en 6 klst. eftir samfarir, en ekki er ráðlagt að hafa hana lengur en 24 klst. Bæta á við sæðisdrepandi efni ef að meira en 3 klst líða frá uppsetningu hettunnar þar til samfarir hefjast.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home