04 apríl 2006

Endaþarmur

Endaþarmsopið skiptir miklu máli í kynlífi vegna þess að það veitir aðgang að honum næma blöðruhálskirtli. Hins vegar er vefurinn í rassaborunni ekki gerður fyrir samfarir og hann víkkar ekki út með sama hætti og leggangavefirnir, því þarf að fara varlega og sleipiefni er nauðsynlegt. Rassopinu er stjórnað af tveimur aflmiklum vöðvum sem kallast hringvöðvar. Hreyfingum ytri hringvöðvanna er hægt að stjórna af vild en hreyfingar innri vöðvans eru ósjálfráðar og stjórnast af ósjálfráða hluta taugakerfisins sem stjórnar m.a. hjartslætti og streitu. Innri hringvöðvinn bregst við ótta og kvíða með því að herpast saman, því er ekki hægt að láta eins og manni langi í endaþarmsmök ef það er ekki tilfellið. En eins og með aðra vöðva eru takmörk fyrir því hvað innri hringvöðvinn getur verið lengi spenntur án þess að þreytast og slakna.
Rassaboran opnast inn í endaþarminn og þó úrgangur sé ekki geymdur þar má oft finna leyfar þar eftir hægðarlosun.

Aldrei setja neitt inn í rassinn sem ekki víkkar út í annan endann. Hringvöðvarnir geta sogað það upp í rassinn.
Læknar hafa þurft að fjarlægja hluti eins og sjampóbrúsa, ljósaperur, og jafnvel hamstra úr rassinum á fólki og satt að segja hafa þeir margt mikilvægara að gera við tíma sinn.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home